Netlausnir

Internet og Wi‑Fi sem bara virkar

Fagleg UniFi netkerfi fyrir hótel, verslanir og skrifstofur. Einn aðili sér um allt frá A–Ö, hönnun, uppsetningu og vöktun, á föstu mánaðargjaldi.

Internet og Wi‑Fi sem bara virkar
  • 24/7Fjarvöktun á netkerfinu
  • UniFiFaglegur búnaður frá Ubiquiti
  • Fast gjaldEinn aðili frá A–Ö á mánaðargjaldi

Það sem við bjóðum

Wi‑Fi aðgangsstaðir

  • UniFi búnaður í loft eða vegg
  • Sterkt samband í öllum rýmum
  • Ræður við marga notendur

Gestanet og lendingarsíða

  • Innskráningarsíða í þínum lit
  • Aðskilið frá rekstrarneti
  • Tímatakmörk og hraðastýring

Rofar og netskápar

  • Snyrtilegur frágangur
  • PoE fyrir myndavélar og AP
  • Varatenging ef samband rofnar

Vöktun og rekstur

  • Fjarvöktun allan sólarhringinn
  • Uppfærslur og öryggi
  • Skjót aðstoð ef eitthvað bilar

Hentar fyrir

Hótel
Skrifstofur
Verslanir
Viðburðir

Netkerfi sem styður daglegan rekstur

Við hönnum UniFi netkerfi út frá húsnæði, notendafjölda og búnaði. Aðgangsstaðir, rofar og tengingar vinna saman svo gestir og starfsfólk fái stöðugt samband þar sem þess þarf.

Gott Wi‑Fi skiptir gesti máli

Fyrir hótel og gististaði er traust Wi‑Fi hluti af upplifuninni. Gestir búast við góðu sambandi í hverju herbergi, og lélegt net endar oft í umsögnum.

Einn aðili frá A–Ö

Þú þarft ekki að tala við marga. Robust sér um búnað, uppsetningu, rekstur og aðstoð á föstu mánaðargjaldi.

Rétt dreifing Wi‑Fi

Við metum þekju og staðsetjum aðgangsstaði með tilliti til veggja, herbergja og álags.

Gestir og rekstur aðskilin

Gestanet er aðskilið frá afgreiðslukerfum og öðrum búnaði fyrirtækisins, með aðgangi og hraðastýringu eftir þörfum.

Sýn yfir kerfið

Miðlæg stjórnun auðveldar bilanagreiningu, uppfærslur og breytingar þegar reksturinn stækkar.

Algengar spurningar

Finnurðu ekki svarið? Sendu okkur fyrirspurn og við svörum fljótt.

Hvað tekur uppsetning langan tíma?
Flest verkefni taka 1–3 daga eftir stærð húsnæðis. Við gefum nákvæma tímaáætlun með tilboðinu.
Get ég notað núverandi búnað?
Oft já. Við förum yfir það sem er til staðar og nýtum það sem stenst kröfur.
Er gestanetið aðskilið frá rekstrinum?
Já, gestir eru alltaf á sér neti, aðskildu frá afgreiðslukerfum og öðrum búnaði fyrirtækisins.
Hvað gerist ef eitthvað bilar?
Við vöktum kerfið og getum oft lagað vandann í fjarvinnslu. Annars komum við á staðinn.
Skref 1 af 4Byrjum á grunninum

Segðu okkur aðeins frá fyrirtækinu þínu svo við getum sett saman rétta lausn.

Tegund starfsemi

Valkvætt — veldu einn eða fleiri flokka.

1 af 4
  • Engin skuldbinding