Wi‑Fi aðgangsstaðir
- UniFi búnaður í loft eða vegg
- Sterkt samband í öllum rýmum
- Ræður við marga notendur
Netlausnir
Fagleg UniFi netkerfi fyrir hótel, verslanir og skrifstofur. Einn aðili sér um allt frá A–Ö, hönnun, uppsetningu og vöktun, á föstu mánaðargjaldi.

Við hönnum UniFi netkerfi út frá húsnæði, notendafjölda og búnaði. Aðgangsstaðir, rofar og tengingar vinna saman svo gestir og starfsfólk fái stöðugt samband þar sem þess þarf.
Fyrir hótel og gististaði er traust Wi‑Fi hluti af upplifuninni. Gestir búast við góðu sambandi í hverju herbergi, og lélegt net endar oft í umsögnum.
Þú þarft ekki að tala við marga. Robust sér um búnað, uppsetningu, rekstur og aðstoð á föstu mánaðargjaldi.
Við metum þekju og staðsetjum aðgangsstaði með tilliti til veggja, herbergja og álags.
Gestanet er aðskilið frá afgreiðslukerfum og öðrum búnaði fyrirtækisins, með aðgangi og hraðastýringu eftir þörfum.
Miðlæg stjórnun auðveldar bilanagreiningu, uppfærslur og breytingar þegar reksturinn stækkar.
Finnurðu ekki svarið? Sendu okkur fyrirspurn og við svörum fljótt.