Myndavélar inni og úti
- 4K myndgæði
- Skýr nætursjón
- Veðurþolnar fyrir íslenskar aðstæður
Öryggismyndavélar
Öryggi skiptir máli fyrir starfsfólk, viðskiptavini og eignir. Myndavélakerfi í háum gæðum með allt að 90 daga upptökutíma, einnig í boði á föstu mánaðargjaldi.

Við veljum myndavélar og upptökubúnað eftir rýmum, birtuskilyrðum og því sem þarf að vakta. Þú færð aðgang að lifandi mynd og upptökum án þess að þurfa að vera á staðnum.
4K og nætursjón eru valin eftir þörfum. Staðsetning og sjónarhorn ráða miklu um hversu vel atvik sjást.
Samhæfur búnaður getur greint fólk og ökutæki og auðveldað leit að atvikum í upptökum.
Upptökur eru geymdar á staðnum. Við stillum varðveislutíma og aðgang eftir þörfum og aðstoðum við tæknilega uppsetningu með persónuvernd í huga.
Finnurðu ekki svarið? Sendu okkur fyrirspurn og við svörum fljótt.